Jæja núna er kallinn búinn að vera eitthvað að reyna að þrífa hjólið í skúrnum og langar í eitthvað efni sem felur rispur og lætur hjólið glansa. ég er búinn að vera að prófa ArmourAll Vinyl gljáa sem er einnig ætlaður plasti.. það nær að fela vel rispur á svarta plastinu en ekki neitt á gula plastinu, þó glansar það og er frekar flott en dugar ekkert á rispurnar á gula svæðinu... Hvað eru menn að nota með góðum árangri?? endilega kommenta og láta vita!
Jæja ég er búinn að vera að vinna í því að blocka þessa spammara sem eru búnir að vera að commenta hjá okkur á fullu!!, svo ef þið getið ekki commentað hjá okkur þá sendiði mér línu á bjossi(hja)tengillehf.is og látið mig vita, það er alveg séns að ég hafi tekið þá vitlausa ip tölu og lokað á hana!, en ég þoli ekki svona Spamm!
hvernig er hjólalífið annars? nú er maður kominn á sumardekkin eins og þið sjáið á myndinni að neðan og hjólið eitursprækt... næst er bara að fá sér mudflares til að vera laus við drulluna :)
Sæl öll, ég tók rúnt með móthjólamönnum frá Varmahlíð og útá Sauðárkrók, nokkuð var um manninn og ágætur rúntur, þó má til gamans geta að það er ágætt að hafa fjórhjól sem er eins vel útbúið og mitt með í ferðum þar sem Hrefna systir á Honda Shadow 1100cc Aero varð fyrst bensínlaus og við það að starta því í gang þá varð það rafmagnslaust á eftir, en haldiði að kallinn hafi ekki bara reddað því þar sem að maður er útbúinn með Bensínbrúsa, Startkapla og margt fleira. þessi fjórhjól geta nú bjargað ýmsu!! ...hehe
en ég læt hér eitt myndband fylgja sem ég tók í dag á rúntinum góða, og svo setti ég á myndirnar í myndaalbúmið.