já sææææll, þá er þetta loksins komið í loftið aftur og þó fyrr hefði verið. Það er ekki hægt að sega að við höfum verið duglegir að hjóla undanfarið þó svo að sumir hafi bara beðið eftir snjó til að leika sér í á stóru blöðronum sínum, en þó voru teknir nokkrir verulega góðir túrar og höfum við eingar sannanir fyrir þeim þar sem að ljósmyndarinn í þessum ferðum var í tómu rugli bara. Smíðin á brúsagrindunum tókst bara helv,,,,, vel bara og er ég nokkuð sáttur hvað hjólið fer vel með þessa auka þingd, en ég verð að snúa upp á Björninn bara að koma með myndir af þeim hérna þar sem ég er ekki tölvuvænn.
Sælir pungar og ég ætla að byrja á því að óska ykkur gleðilegra páska svona seint um síðir,
en þannig er mál með vexti að síðan okkar er búin að vera biluð núna í langann tíma og það þurfti sko ekki meira né minna en símtal til útlanda til að redda málunum, en þetta hafðist og á að virka allt núna!
ég biðst velvirðingar á þessum leiðindum.
en þá fer maður aftur að blogga á fullu og skella inn videoum og myndum.
hvernig voru páskarnir annars? var mikið hjólað ???
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 17. Febrúar 2010 21:26
Vetrarsport 2010
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson
Þriðjudagur, 09. Febrúar 2010 23:01
Tekið af thegreatnortherntrailbillies.123.is :
Föstudagur: Snjóspyrna á tjörninni við Skautahöllina kl. 20.00. Öflugustu tæki landsins verða þarna og þenja raddirnar. Laugardagur: Stórsýningin Vetrarsport 2010 í Boganum Akureyri. Opið frá kl. 10.00-17.00 Sunnudagur: Stórsýningin Vetrarsport 2010 í Boganum Akureyri. Opið fá kl. 12.00-16.00
Jæja nú kom fyrsta reynslan með þessar led perur, þetta var mjög skemmtilegur hjólatúr þangað til að það fór að dimma, ég sá ekki neitt með þessu bölvaða drasli svo ég vildi bara segja það hér hreint út svo þið getið sparað ykkur krónurnar... ! þetta lýsir ekki baun í bala og sennilega fer hleðslan á hjólinu eitthvað fyrir ofan 12v nær sennilega hátt í 14, 15 volt og perurnar hafa ekki þolað það.. það áttu að vera 18 díóður á hverri peru en eftir þetta þá voru tvær perur bara með 17 díóður og smá svartur blettur á þeim..
en þetta er ekki peninganna virði! borgaði 6500 fyrir 8stk af þessum perum sem er ekki svaka verð en það er skárra að eyða peningnum í eitthvað sem virkar...!
Spurning hvernig hleðslan í hjólinu fer með Xenon?! er einhver á Renegade og búinn að setja Xenon? endilega látið í ykkur heyra, þó það séu einhver önnur hjól líka..
Síðast uppfært: Sunnudagur, 07. Febrúar 2010 22:46
Led perur
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson
Miðvikudagur, 03. Febrúar 2010 21:45
Sælir ég keypti led perur í síðasta mánuði á ebay og var að fá þær í hendurnar í dag og spenningurinn var það mikill að ég varð að prófa þær í hádeginu, ég verð að segja að ég varð ekki fyrir vonbrigðum, ég var búinn að heyra að það væri minna ljós af þeim en halogen perunum og því reiknaði ég með smá minni birtu, tek það fram að aðalástæðan fyrir því að þær voru pantaðar er þetta Low batt sem kemur mjög oft hjá okkur Renegade eigendum. (gefið að það sé búið að setja spil eða breyta ljósunum þannig öll logi á háa geislanum). t.d. eins og hjá mér þá er ég með öll ljósin logandi á háa sem væru 240w með halogen en á að vera um 10w með led perunum.
Ég á enn eftir að fara út að hjóla með þær en þetta lofar alveg góðu, testaði þetta í myrkrinu í skúrnum áðan og held að þetta sleppi alveg.