Velkomin á Skr-Atv.com
video frá okkur á AIFS Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Sunnudagur, 03. Janúar 2010 15:24

hahaha, fann þetta video inná AIFS sem við tókum fyrsta veturinn eftir að gunni eignaðist renegade-ið sitt.

http://aifs.is/video?v=4fJZf066fqUTj

Síðast uppfært: Sunnudagur, 03. Janúar 2010 15:26
 
Ferðasaga af gamlársdegi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Föstudagur, 01. Janúar 2010 19:44

Jæja sælir,

þessi dagur var ekkert sérstaklega góður þó við höfðum fengið ágæta hreyfingu.
þetta byrjaði allt með því að ég ætlaði að setja hjól Júlíönu í gang því hún ætlaði að kíkja í búðina og svona en það fór ekki gang og varð rafmagnslaust eins og skot svo hún ákvað að labba bara í búðina, ég hjólaði af stað á ábæ þar sem við ætluðum að hittast, beygði út úr götunni og áður en ég kom fyrir hornið var ég kominn inní miðjann skokk hóp þar sem eitthvað gamlárshlaup var í gangi og hálfur bærinn að skokka! og fólkið var sko ekki að færa sig, hljóp á miðjum vegi. Svo þegar að ég loksins komst í gegnum almúgann og var kominn á ábæ þá tók ég eftir að hólfið að aftan var opið hjá mér og engin verkfærataska og skráningarskirteini. (ég hafði gleymt að loka því kvöldið áður) og því fór ég til baka og ennþá var fólk að skokka og ég þurfti því að keyra aftur í gegnum hópinn og fann þá verkfæratöskuna og skráningarskirteinið á götunni sem betur fer.. svo þegar að ég er aftur kominn upp á ábæ þá er benni rétt að klára að pumpa í dekkin hjá sér og Gunni kominn líka.. svo þegar að við ætluðum af stað þá var benni rafmagnslaus og það þarf að taka boxið úr að aftan til að komast að rafgeyminum, það var farið í að skrúfa boxið úr og fengum við start hjá Völu á N1 svo hjólið komst í gang og boxið skrúfað aftur í. Við lögðum þá af stað á molduxa og strax fyrir ofan golfvöll vorum við komnir í mikinn snjó. náðum þó að komast upp stærstu brekkuna og þá var vegurinn alveg í kafi og við byrjum að hjakka og festast og kippa hvor öðrum upp nema ég festi mig á einum stað mjög vel og var farinn að moka mig upp þegar að ég sé að það er komið check engine ljós í mælaborðið svo ég drep á því og held áfram að moka svo þegar ég er búinn að moka og ætla að prófa að hjakka þá er hjólið mitt rafmagnslaust og fer ekki í gang.. þá kom gunni og kippti mér upp meðan ég og benni ýttum á eftir hjólinu. þegar komið var á góða undirstöðu þá var farið að skrúfa boxin úr mínu hjóli og benna svo benni gæti gefið mér stuð og viti menn það stein dó á hjólinu hans benna við að setja kaplana á það og það fór ekki gang :( og við litum á hvorn annan og okkur leist ekki á þetta. eina hjólið sem var í gangi var gunna hjól og því tókum við sénsinn að skrúfa boxið úr hjá honum og gáfum benna stuð og það fór í gang, svo fór mitt hjól í gang og þá var ekkert eftir en að skrúfa boxin í aftur... það var gerð ein atlaga aftur í skaflinn og það komst ekki langt þá var tekin ákvörðun um að snúa við og kíkja eitthvað annað. rétt fyrir neðan golfskála sat fastur Skoda octavia og spjölluðum við kappann sem á henni var og ákváðum að reyna að kippa í hann. Við hnýttum spotta í mitt hjól og gunna hjól og það var sett í Lága og keyrt af stað.. náðum að mjaka bílnum smá afturábak og slitum spottann tvisvar, svo þegar að nýr spotti var kominn í þá var aftur tekið af stað og þá kom einhver smá smellur hjá Gunna og viti menn!! ekkert framdrif lengur! :( úff... þannig að það var pakkað saman og haldið heim, en svo kom í ljós að benni var ekkert að fylgja svo ég sneri við og þá sat hann fastur á sama stað og bíllinn, og ég ætlaði að gera mig klárann að fara að kippa í hann nema þá festist ég við hliðina á honum!! ARG! þetta var alveg að verða óþolandi dagur! svo ég hjálpa benna að ýta hjólinu hans úr skaflinum og svo fórum við og ýttum mínu hjóli upp þegar búið var að moka frá því... eftir þetta voru engir sjénsar teknir og komið við á Shell til að pumpa í dekkin á heimleiðinni...   En með hjólið hans gunna þá við fyrstu sýn lítur út fyrir að öxullinn úr gírkassanum að framan sé brotinn og það þarf að rífa mótorinn úr hjólinu til að laga þetta! En ég vona það besta og að þetta taki sem stystan tíma og að öxullinn sé ekki dýr...
Palli Trausta kíkti í skúrinn þar sem hann var hér yfir áramótin og talaði um að hann hefði ekki séð svona öxul brotinn áður en átti ekki von á öðru en að öxullinn væri ekki svo dýr, þetta væri bara mikil vinna við rifrildi!

Svo þessi hjólarúntur var martröð frá upphafi til enda!. Vona að dagurinn hafi verið góður samt hjá flestum

 

Síðast uppfært: Föstudagur, 01. Janúar 2010 20:11
 
Hjólarúntur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 30. Desember 2009 22:29

Sælir, við ætlum að fara að hjóla á morgun, 31.des. Brottför frá N1 á Sauðárkróki kl 13.15 og fyrirhugað er að kíkja uppí Molduxa

(vona að við komumst alla leið) ef það gengur auðveldlega fyrir sig þá verður þvælst eitthvað meira en ég á meira von á því að það verði einhverjar festur og gaman... allavega þá fórum við Gunni í dag tveir að hjóla eftir hádegi og skiptumst á að festa okkur og draga hvorn annann upp. þetta var heljar skemmtilegur dagur og vona að morgundagurinn verði ekki síðri..

endilega mætið strákar!

 
Annað gamalt video Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 28. Desember 2009 18:16

Fann annað video í símanum, þröstur sat fastur á toppnum á meðan Gunni hjólaði í kringum hann :D

 

 
Gunni Palli á Renegade Vetur 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 28. Desember 2009 18:14

Fann eitt gamalt video í símanum og ákvað að skella því hér inn:

 

 
M&M myndbönd og hjólatúr Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Sunnudagur, 27. Desember 2009 18:06

Jæja þá er maður búinn að horfa á öll myndböndin og eru þau tær snilld, gaman væri að komast í fleiri svona myndbönd.. þyrftum að smala okkur nokkrir saman og kaupa fleiri, Jói T var búinn að vera að tala um það við mig að fjölmenna í svona kaup og reyna að kaupa nokkrar í einu. Leggst það ekki bara vel í menn?

Annars þá fórum við góðann hjólatúr í gær fram í sveit í Blönduhlíðinni, byrjuðum á því að fara með hjólin á kerru fram í Réttarholt (ég og Gunni) þar sem við hittum Davíð og Knút, Stebbi í Ási kom svo á 800 sportsmaninum. þaðan voru svo skaflarnir tættir fram að Ökrum þar sem Óskar bættist í hópinn á Husaberg enduro hjólinu sínu, leiðin lá áfram að Kúskerpi þar sem Siggi kúskur var á sleða en náði svo í krossarann sinn og tætti snjó með okkur á landareigninni. Eftir það lá leiðin heim aftur að Réttarholti þar sem allir skaflar voru jafnaðir við jörðu. En þetta var heljargóður dagur sem gaman væri að endurtaka einhverntímann.

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 27. Desember 2009 18:13
 
Mountains and Mud Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Föstudagur, 25. Desember 2009 18:10

Sælir, nú er maður búinn að horfa á mynd 1 og 2 og þær eru þrælgóðar, mjög skemmtilegar myndir, 1 er heldur rólegri en 2 en samt mjög skemmtileg.

mæli eindregið með þessum myndum...

Svo þurfum við bara að fara að halda hitting við fjórhjólakappar á Sauðárkróki og nágrenni (aðrir þó velkomnir líka) og halda smá fund og horfa á myndir, myndbönd og fl.

hafa gaman að þessu.

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 27. Desember 2009 18:06
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL