Velkomin á Skr-Atv.com
öxnadalsheiði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 30. Júní 2010 01:09

jæja við fórum smá rúnt á mánudaginn ég og gunni, og könnuðum slóða á öxnadalsheiði, eitthvað sem við höfum talað um að gera frá því maður byrjaði í þessu sporti, það er alveg rosalega gaman að keyra gamla veginn þarna í kring og tókum við örfáar myndir sem fóru í myndasafnið.

 
Gunni water splash Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Þriðjudagur, 29. Júní 2010 09:54

 
Lokanir á hálandavegum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 23. Júní 2010 23:35

Já sælir, ég vill benda sem flestum á að mótmæla á þessum vefi fyrir lokunum á hálandavegum landsins. fleira er í gangi hjá sveitarfélögum og stjórnvöldum og enginn spurður sem notar þessa vegi, það er enginn rökstuðningur á baki því að loka þessum vegum!! og á örugglega bara eftir að gera íllt verra!

endilega skráið ykkur þarna inn:

 

http://www.f4x4.is/motmaeli/

 

 
Hvert skal fara?? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 21. Júní 2010 19:33

Sælir fjórhjólaáhugamenn!

ég efast um þessa Heljardalsheiðarferð sökum mikils vatns á þessum árstíma í Kolkuá svo ég ætlaði að kasta hér fram þeirri spurningu um hvert skal ferðinni heitið?? ég og Gunni erum uppteknir á Laugardaginn svo það er Sunnudagurinn sem um ræðir.

það eru þó nokkrar hugmyndir í loftinu.

fara upp hjá Reynisstað og fara alla leið í þúfnavelli og kíkja í skálann. (þurfum leyfi hjá bóndanum en ég var búinn að minnast á þetta við son hans og það á ekki að vera neitt mál)

Fara upp í Laugarfell (skagafjarðarmegin) akureyringarnir gætu hitt okkur þar og hægt væri að hjóla eitthvað þar í kring.

Hjóla uppí Skiptabakka

vera í sambandi við Akureyringana og kíkja upp í Helju þeirra megin.

hvað finnst ykkur?? endilega kommenta hér undir fréttinni.

 
Akureyrarferð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Sunnudagur, 20. Júní 2010 12:01

Jæja, ég kíkti til Akureyrar til Jóa T og félaga, endaði reyndar þannig að að við vorum bara þrír ég, Jói og Alli, en það var samt hellingsgaman hjá okkur.
við byrjuðum á því að fara yfir Vaðlaheiðina og svo í gegnum einhverja skóga áleiðis til Grenivíkur þar sem við keyrðum upp slóða sem liggur upp Kaldbak. Þar var borðað smá nesti og spjallað saman og svo lá leiðin heim, kíktum við í Vaglaskóg og Lundsskóg og keyrðum þar í gegn þar rákumst við á einvher 4-5 fjórhjól sem voru þar að leika sér líka. en eftir það var það yfir Vaðlaheiðina aftur og enduðum við á Akureyri. ég þakka ykkur fyrir skemmtilegan túr drengir.

Ég set svo nokkrar myndir í albúmið hér á síðunni.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 20. Júní 2010 12:36
 
Nú er maður að plana Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 14. Júní 2010 21:48

Já, maður er á fullu að plana og skoða.... spá og spegúlera...  Varðandi ferðina yfir Heljardalsheiðina og yfir á Dalvík.

Sennilega væri best að fara með hjólin á kerrum upp að Hólum og hjóla þaðan. (annars er þetta bara malbikskeyrsla frá Sauðárkrók og alla leið að afleggjaranum við Kolbeinsdal.

En hérna er mynd af því hvar við myndum fara upp.

 

er enginn stemmari fyrir þessu?? :D

Síðast uppfært: Mánudagur, 14. Júní 2010 21:55
 
Can am Off-Road bíll Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Laugardagur, 12. Júní 2010 13:41

BRP var að koma út með bíl sem heitir CAN-AM Commander, og er sport offroad bíll, hægt að fá hann í 3 útgáfum eins og er og hér er video sem sýnir útlit hans, eins og sjá má er sumt nauða líkt Renegade fjórhjólinu, t.d. sama mælaborð, svipað lúkk að framan o.s.f.v.

 

 

Nánari upplýsingar hér:

http://en-us.can-amside-by-side.brp.com/showroom/category/Commander-1000.aspx

Síðast uppfært: Laugardagur, 12. Júní 2010 13:46
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL