| Ný könnun |
|
|
|
| Skrifað af: Björn Ingi Björnsson |
| Laugardagur, 12. Júní 2010 00:38 |
|
Jæja ég setti nýja könnun varðandi ferð sem ég er búinn að vera með í hausnum dáltið lengi.. en það er planið að fara inn Kolbeinsdalinn og svo yfir Heljardalsheiði og koma niður og enda á Dalvík þar sem hægt væri að tanka og borða nesti. Síðan kom hugmynd um að fara Lágheiðina heim eða þá að keyra sömu leið til baka. það fer svo bara eftir stemmningu hvort við leggjum af stað frá Sauðárkrók á hjólunum eða að við drögum kerrur fram að kolbeinsdal eða Hólum í hjaltadal og hjólað þaðan. ég setti inn dagsetningar til hliðar sem hentuðu mér svo endilega að kjósa hvaða dag gæti hentað ykkur, við hljótum að ná að samræma þetta eitthvað.. líst ykkur ekki vel á þessa hugmynd annars?? |



