|
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson
|
|
Sunnudagur, 20. Júní 2010 12:01 |
|
Jæja, ég kíkti til Akureyrar til Jóa T og félaga, endaði reyndar þannig að að við vorum bara þrír ég, Jói og Alli, en það var samt hellingsgaman hjá okkur. við byrjuðum á því að fara yfir Vaðlaheiðina og svo í gegnum einhverja skóga áleiðis til Grenivíkur þar sem við keyrðum upp slóða sem liggur upp Kaldbak. Þar var borðað smá nesti og spjallað saman og svo lá leiðin heim, kíktum við í Vaglaskóg og Lundsskóg og keyrðum þar í gegn þar rákumst við á einvher 4-5 fjórhjól sem voru þar að leika sér líka. en eftir það var það yfir Vaðlaheiðina aftur og enduðum við á Akureyri. ég þakka ykkur fyrir skemmtilegan túr drengir.
Ég set svo nokkrar myndir í albúmið hér á síðunni.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 20. Júní 2010 12:36 |