| Hvert skal fara?? |
|
|
|
| Skrifað af: Björn Ingi Björnsson |
| Mánudagur, 21. Júní 2010 19:33 |
|
Sælir fjórhjólaáhugamenn! ég efast um þessa Heljardalsheiðarferð sökum mikils vatns á þessum árstíma í Kolkuá svo ég ætlaði að kasta hér fram þeirri spurningu um hvert skal ferðinni heitið?? ég og Gunni erum uppteknir á Laugardaginn svo það er Sunnudagurinn sem um ræðir. það eru þó nokkrar hugmyndir í loftinu. fara upp hjá Reynisstað og fara alla leið í þúfnavelli og kíkja í skálann. (þurfum leyfi hjá bóndanum en ég var búinn að minnast á þetta við son hans og það á ekki að vera neitt mál) Fara upp í Laugarfell (skagafjarðarmegin) akureyringarnir gætu hitt okkur þar og hægt væri að hjóla eitthvað þar í kring. Hjóla uppí Skiptabakka vera í sambandi við Akureyringana og kíkja upp í Helju þeirra megin. hvað finnst ykkur?? endilega kommenta hér undir fréttinni. |



