Um Skr-Atv Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 18. Nóvember 2009 15:29

Upphaflega varð til hugmynd að þessari vefsíðu til að halda utan um þann hóp sem safnaðist saman árið 2007 til að fara í Icehobby og kaupa SMC Captein fjórhjól. Náðist að safna saman 8 manns sem keyptu svona hjól og kláruðum við þar með lagerinn hjá Ice-hobby af þessari tegund, en í dag eru helmingur eða meira búinn að selja þessi hjól. Miklar mannabreytingar hafa orðið i kringum síðuna og einnig hjólabreytingar.

Í dag erum við næstum öll á fjórhjóladrifshjólum nema tvær dömur sem eru í klúbbnum líka.

Fjórhjólasportið er vaxandi sport í dag og því var ekki komist hjá stofnun slíks klúbbs hér í Skagafirði.
Það er öllum velkomin að ganga í klúbbinn og það kostar ekkert eins og er, svo um að gera að vera með.

Fyrir þá sem velta fyrir sér hvað Skr-Atv stendur fyrir þá stendur þetta fyrir Sauðárkrókur/Skagafjörður  og ATV = All terrain vehicle = fjórhjól á ensku

 

Ef þú vilt ganga í klúbbinn eða hafa samband þá getur þú sent póst á bjossi(hja)tengillehf.is

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. Nóvember 2009 20:46