|
|
|
skipta um lit í mælaborði á Can-am |
|
Auðveldasta leiðin til að fá bakkljós á renegade |
|
Var að skoða á netinu og rakst á þetta þar sem einhver var að reyna að fá bakkljós á Renegade-ið sitt.
en þetta sýnir hvernig vírarnir eru uppsettir svo ekki væri hægt að nota þá nema með nokkrum rely-um og veseni. (nema að þú viljir að ljósið logi í N og P líka)

þannig að þessi kauði leysti þetta svona:


fékk sér rofa og kom honum fyrir þarna. held að þetta sé líka einfaldast og þægilegast.
|
|
allar breytingar eru á ykkar ábyrgð, tek enga ábyrgð á þeim hlutum sem koma hér fram.
En hér eru leiðbeiningar um það hvernig þið eigið að tengja ádrepara rofa á Can-am Renegade:
Fyrst þarftu að vera með rofa sem er "normally closed" (það eru til tvær gerðir, normally closed og normally open)
Undir plastinu að framanverðu eru vírarnir þú þarft að finna tengið sem er með rauðann hring á myndinni að neðan, í því er brúnn vír sem þú klippir í sundur og tengir í þá tvo víra sem koma úr rofanum þínum. Flóknara á þetta ekki að vera.

|
|
Erfitt að skipta um gír á Can-am |
|
Ef þið eruð í vandræðum með að skipta um gír á Can-am hjólunum ykkar þá gætuð þið farið í að skipta um one way leguna í kúplingunni..
ég hef ekki gert þetta við mitt hjól en þeir eru mikið að skipta um þetta í hjólunum úti. legan sem þið þyrftuð að kaupa heitir RBL61808
en hér getið séð skref fyrir skref leiðbeiningar á ensku:
http://www.can-amtalk.com/forums/index.php?showtopic=11840
|
|
lekur meðfram pakkdós á gírkassa |
|
Ef það lekur meðfram pakkdósinni á gírkassanum, byrjið þá að athuga öndunina fyrir gírkassan, það liggur slanga sem er með einstefnuloka til að hleypa loftþrýsting úr kassanum, ef þessi öndun stíflast þá leitar þrýstingurinn út þar sem er auðveldast að komast og það eru þá pakkdósirnar sem byrja að leka, en auðvitað getur alltaf pakkdós verið farin en það er ágætt að byrja á þessu, því það þarf ekki nema að það sé brot á slöngunni til að þetta hætti að virka.
|
|
Can-am 4WD takka breyting |
|
|
|
|
|