Fréttir
Nýtt hjól í fjörðinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 01. September 2010 11:35

jæja nýtt hjól kom í fjörðinn í síðustu viku en það var enginn annar en Unnar Egilsson, bróðir Benna sem gerði sér lítið fyrir og splæsti í eitt 2008 Can Am Renegade 800, hlaðið búnaði: hiti í handföngum, grind að aftan og 27" dekk svo eitthvað sé nefnt.

óskum við kappanum til hamingju með þetta og vonumst við til að sjá hann sem oftast með okkur!

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. September 2010 11:38
 
smá bilerí Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 01. September 2010 11:31

Jæja þá kom upp smá bilerí. En við Gunni vorum að kíkja á ástandið á kúplingunum hjá okkur og kom þá í ljós að Helixinn fyrir aftari kúplinguna var víst orðinn mjög lélegur hjá mér og komnar sprungur í hann svo við ákváðum að setja kúplinguna ekki aftur í mitt hjól fyrr en ég fengi nýjann helix. En hann var ekki til eins og allt annað sem maður hefur þurft að panta... en tekur rétt rúma viku að koma og kostar u.þ.b. 13þús kall. Svo þarf að drífa sig að græja þetta og kíkja í eina alvöru ferð áður en sumarið klárast líst ekki mönnum vel á það annars?

 
Þúfnavellir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 09. Ágúst 2010 09:32

Jæja við Gunni kíktum uppí Þúfnavelli í gær (sunnudagurinn 08.08.10) og skemmtum okkur konunglega, ferðin var þrælskemmtileg en þónokkuð var um stórgrýti. Veðrið lék við okkur og var örugglega hátt í 20 stiga hita í forsælu. Við tókum nokkrar myndir á leiðinni og koma þær inn í kvöld. Ferðin var þrælskemmtileg að öllu leyti og gaman væri að fara aftur seinna. Við tókum samt eftir því að þegar við fórum áður að vetri til, þá fannst okkur við eiga stutt eftir en það var langt því frá, við höfðum sennilega ekki verið búnir með nema 1 þriðja af leiðinni. En það var ekki leiðinilegt heldur.

Farið var upp hjá Reynisstað og fengjum við leyfi hjá bóndanum þar á bæ. Ég mæli eindregið með þessari leið en ef einhver ætlar að fá að fara þarna upp þá þarf leyfi hjá bóndanum þar sem þetta er einkaland.

fylgist með myndunum sem koma í kvöld!

 

 
Akureyri um Versló Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 28. Júlí 2010 17:40

Á ekki að mæta á torfæru og spyrnu á Akureyri um helgina?

 

 

 
öxnadalsheiði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 30. Júní 2010 01:09

jæja við fórum smá rúnt á mánudaginn ég og gunni, og könnuðum slóða á öxnadalsheiði, eitthvað sem við höfum talað um að gera frá því maður byrjaði í þessu sporti, það er alveg rosalega gaman að keyra gamla veginn þarna í kring og tókum við örfáar myndir sem fóru í myndasafnið.

 
Lokanir á hálandavegum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Miðvikudagur, 23. Júní 2010 23:35

Já sælir, ég vill benda sem flestum á að mótmæla á þessum vefi fyrir lokunum á hálandavegum landsins. fleira er í gangi hjá sveitarfélögum og stjórnvöldum og enginn spurður sem notar þessa vegi, það er enginn rökstuðningur á baki því að loka þessum vegum!! og á örugglega bara eftir að gera íllt verra!

endilega skráið ykkur þarna inn:

 

http://www.f4x4.is/motmaeli/

 

 
Hvert skal fara?? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Björn Ingi Björnsson   
Mánudagur, 21. Júní 2010 19:33

Sælir fjórhjólaáhugamenn!

ég efast um þessa Heljardalsheiðarferð sökum mikils vatns á þessum árstíma í Kolkuá svo ég ætlaði að kasta hér fram þeirri spurningu um hvert skal ferðinni heitið?? ég og Gunni erum uppteknir á Laugardaginn svo það er Sunnudagurinn sem um ræðir.

það eru þó nokkrar hugmyndir í loftinu.

fara upp hjá Reynisstað og fara alla leið í þúfnavelli og kíkja í skálann. (þurfum leyfi hjá bóndanum en ég var búinn að minnast á þetta við son hans og það á ekki að vera neitt mál)

Fara upp í Laugarfell (skagafjarðarmegin) akureyringarnir gætu hitt okkur þar og hægt væri að hjóla eitthvað þar í kring.

Hjóla uppí Skiptabakka

vera í sambandi við Akureyringana og kíkja upp í Helju þeirra megin.

hvað finnst ykkur?? endilega kommenta hér undir fréttinni.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL